Fótbolti

Rio sá það í sjónvarpinu að hann væri orðinn fyrirliði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nordic Photos / AFP

Rio Ferdinand hefur greint frá því að hann hafi fengið tíðindin um að hann væri nýr fyrirliði enska landsliðsins í gegnum sjónvarpið.

Eins og kunnugt er var fyrirliðabandið tekið af John Terry. Rio fær þó ekki tækifæri til þess að vera fyrirliði í kvöld þar sem hann er meiddur. Steven Gerrard varafyrirliði verður því með bandið góða.

Rio sagði í viðtali sem tekið var í síðustu viku að hann hefði ekkert rætt við Capello um málið.

„Við eigum eftir að ræða saman. Liðið hefur ekki fengið að vita neitt. Við verðum að bíða þar til við hittumst. Þess vegna sá ég það bara í sjónvarpinu að ég væri orðinn fyrirliði," sagði Rio sem er væntanlega búinn að fara yfir málin með Capello í dag.

Ferdinand er annars afar ánægður með landsliðsþjálfarann sinn.

„Hann er frábær. Ekki ósvipaður stjóranum sem við höfum hjá United. Það besta við hann er að það er allt svart og hvítt hjá honum. Maður veit nákvæmlega hvað hann vill fá frá manni áður en maður fer á völlinn. Það hefur vantað upp á það áður."

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×