Fótbolti

Fyrirliðastaðan skiptir miklu máli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Margir hafa furðað sig á því hvað Englendingar gera mikið mál úr því hver sé fyrirliði landsliðsins í knattspyrnu.

Steven Gerrard verður fyrirliði enska landsliðsins í kvöld gegn Egyptalandi þar sem Rio Ferdinand getur ekki leikið vegna meiðsla.

Gerrard segir það skipta sig miklu máli að vera fyrirliði og segir að það skipti sig engu máli hvað öðrum þjóðum finnst.

„Mér finnst við alls ekki gera of mikið úr þessu. Að vera fyrirliði Englands er eitthvað sem gerir menn stolta. Alla krakka dreymir um að vera fyrirliði enska landsliðsins. Það var ekkert öðruvísi með mig," sagði Gerrard.

„Álit annarra þjóða skiptir mig engu máli. Hér þarf að vinna fyrir því að verða fyrirliði. Það er dónaskapur við fyrirliðastöðuna að það sé sjálfsagt að sá elsti eða leikjahæsti sé fyrirliði. Hér þarf að vinna sér inn rétt til þess að vera fyrirliði."

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×