Fótbolti

Leikmenn verða að vera góðar fyrirmyndir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, segir að það sé kominn tími á að ensku fótboltastjörnurnar fari að sýna gott fordæmi innan sem utan vallar.

Hvert kynlífshneykslið hefur rekið annað í herbúðum enska landsliðsins sem reyndar á allt rætur sínar að rekja inn í herbúðir Chelsea þar sem menn virðast vera í vandræðum með að reima stuttbuxurnar.

John Terry og Ashley Cole hafa þar verið fremstir í flokki og Wayne Bridge er hættur að spila með landsliðinu þar sem Terry sængaði með barnsmóður hans.

„Þetta eru allt mikilvægir menn í landsliðinu og þeir verða að vera góð fyrirmynd fyrir börnin sem og stuðningsmennina. Af þeim ástæðum þurfa þeir að fara varlega og fórna einhverju í lífinu," sagði Capello.

„Þetta eru ungir leikmenn. Ungir, ríkir menn og það er vandamálið," sagði Capello sem vonar að hneykslismálunum sé lokið.

„Ég vona það. Það er mjög mikilvægt þegar stutt er í HM að menn gæti að sér í einkalífinu. Ég held að það verði allt í lagi næstu þrjá mánuði."

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×