Fótbolti

Aðalvöllurinn á HM fer langt yfir kostnaðaráætlun

Elvar Geir Magnússon skrifar
Völlurinn ber nafnið Soccer City.
Völlurinn ber nafnið Soccer City.

Hækkandi verð á efniskostnaði hefur gert það að verkum að bygging leikvangarins sem hýsir opnunar- og úrslitaleikinn á HM í Suður-Afríku fer langt yfir kostnaðaráætlun.

Borgarstjórnin í Jóhannesarborg, þar sem úrslitaleikurinn fer fram, hefur tilkynnt að kostnaðurinn verði rúmlega 25 milljörðum íslenskra króna yfir þá áætlun sem var gerð í upphafi.

Heildarverð á byggingu vallarins verður líklega 424 milljónir punda. Leikvangurinn sjálfur er nánast tilbúinn en það á eftir að ganga frá samgöngum kringum hann og er búist við að það verk verði klárað um miðjan mánuðinn.

Það eru 99 dagar í heimsmeistaramótið í Suður-Afríku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×