Ásmundur: Þetta er karaktersigur Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 18. maí 2009 22:33 Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis. Mynd/Daníel „
Áttu ekki skilið það sem þú færð? Þú leggur þig fram og færð það sem þú átt skilið," sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, sposkur á svip eftir 3-2 sigur sinna manna á Grindavík fyrr í kvöld. Ásmundur gerði nokkrar hrókeringar í vörninni frá síðasta leik og voru Fjölnismenn nokkuð opnir framan af. „Fyrri hálfleikur var mjög opinn og við þurftum að gera allt of margar hrókeringar í sjálfu sér fyrir leikinn, en ég tel að það hafi skilað sér að lokum. Okkur tókst að þétta þetta og vinna okkur inn í leikinn eftir að hafa lent undir," segir Ásmundur. Fjölnismenn lentu í tvígang undir í leiknum en náðu að koma til baka og hirða öll stigin þrjú. „Þetta er karaktersigur." Grindvíkingar óðu hreinlega í færum í leiknum og þurfti Þórður Ingason oft að taka á honum stóra sínum í marki Fjölnismanna. „Hann er að standa sig mjög vel og við treystum á að hann geri það áfram. „ Grindvíkingar vildu meina að dómgæslan hafi hallað verulega á þá í leiknum. Ásmundur er ekki sammála því. „Nei ég vil meina að það hafi verið jafnt á báða bóga. Þannig er það samt oft þegar þú tapar, þá tekurðu frekar eftir því að það sé dæmt á móti þér. Við höfum tekið eftir því í síðustu tveimur leikjum," sagði hann og hló. Ásmundur tók sem dæmi atvik í fyrri hálfleik þegar Zoran Stamenic handlék knöttinn að því er virtist innan vítateigs. Þorvaldur Árnason mat þó svo að hann hefði verið utan teigs og dæmdi aukaspyrnu. „Mér fannst hann vera fyrir innan teig en dómarinn tók ákvörðunina og verður að standa við hana." Þó Fjölnismenn hafi verið nokkuð heppnir segir Ásmundur: „Þú vinnur fyrir þeirri heppni sem þú færð. Við þurfum að byggja á þessu og þétta og laga það sem þarf að laga."
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: Fjölnismenn rændu Grindvíkinga í Grafarvogi Fjölnir vann 3-2 sigur á Grindavík á heimavelli sínum í Grafarvoginum eftir að hafa tvívegis lent undir í leiknum. 18. maí 2009 18:15 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Kane lendir um helgina Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna ÍBV - FH | Fyrsti leikur ÍBV eftir fall Grindavík/Njarðvík - ÍBV | Gríðarleg barátta á lokasprettinum Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Sjá meira
Umfjöllun: Fjölnismenn rændu Grindvíkinga í Grafarvogi Fjölnir vann 3-2 sigur á Grindavík á heimavelli sínum í Grafarvoginum eftir að hafa tvívegis lent undir í leiknum. 18. maí 2009 18:15