Arsenal niðurlægði Everton Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. ágúst 2009 18:30 Cesc Fabregas og Robin van Persie fagna marki þess fyrrnefnda. Nordic Photos / Getty Images
Arsenal gerði sér lítið fyrir og vann 6-1 sigur á Everton í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Brasilíumaðurinn Denilson skoraði fyrsta mark leiksins á 26. mínútu með glæsilegu skoti eftir laglegan undirbúning Nicklas Bendtner og Cesc Fabregas. Næstu tvö mörk voru keimlík. Það fyrra skoraði nýliðinn Thomas Vermaelen með skalla eftir fyrirgjöf Robin van Persie úr aukaspyrnu. Van Persie tók svo aðra aukaspyrnu örskömmu síðar og nú var það William Gallas sem skoraði með skalla framhjá Tim Howard markverði. Stuðningsmenn Everton voru ekki ánægðir í hálfleik en ástandið átti bara eftir að versna í þeim síðari. Fabregas skoraði fyrstu tvö mörk Arsenal í síðari hálfleik, það fyrra með hnitmiðuðu skoti eftir fyrirgjöf van Persie. Síðara mark Fabregas kom eftir einnig laglegt skot. Sjötta markið skoraði svo varamaðurinn Eduardo en hann fylgdi eftir skoti Andrey Arshavin í stöng. Louis Saha náði að klóra í bakkann fyrir heimamenn í uppbótartíma er hann fylgdi eftir skoti Steven Pienaar sem Manuel Almunia náði að verja. Leikmenn Arsenal fóru því hreinlega á kostum í dag en margir höfðu efast um að liðið gæti gert alvöru atlögu að enska meistaratitilinn eftir að félagið missti þá Kolo Toure og Emmanuel Adebayor frá sér í sumar. En eftir þennan leik er ljóst að liðið er til alls líklegt.
Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Orri áfram heitur á Spáni Fótbolti Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Enski boltinn Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Körfubolti Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Í straff vegna skilaboða til ólögráða stúlku Sakaðir um ólöglegar upptökur Neyðast til að styðja liðið sem þeir hata Carrick segist bíða rólegur Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Sjá meira