Lögreglumenn þreyttir á breytingum 30. júlí 2009 05:45 Arinbjörn segir hugsanlegt að dómsmálaráðherra mæti á fundinn. Mynd/Vilhelm
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa blásið til almenns félagsfundar síðdegis í dag til að ræða ástandið í lögreglumálum í borginni. Lögreglumenn eru ósáttir við nýlegar og væntanlegar breytingar á skipulagi lögreglunnar. Rannsóknardeildir lögreglunnar hafa verið fluttar út í nýjar hverfislögreglustöðvar, sem til stendur að veita enn frekara sjálfstæði. Að sögn Arinbjörns Snorrasonar, formanns Félags lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu, eru rannsóknarlögreglumenn óánægðir með breytinguna sem orðið hefur. Arinbjörn segir að með því að setja á fót þessar sjálfstæðu lögreglustöðvar sé í raun verið að snúa við þeirri breytingu sem gerð var í ársbyrjun 2007, þegar lögregluembætti á höfuðborgarsvæðinu voru sameinuð í eitt. „Það má eiginlega segja að þeir séu komnir í ríflega 360 gráður," segir hann. Sameiningin hafi augljóslega mistekist að hluta eða öllu leyti. Þá er að störfum vinnuhópur innan dómsmálaráðuneytisins sem ætlað er að skila tillögum til ráðherra um enn frekari skipulagsbreytingar hjá lögregluembættum landsins, sem kunna að verða víðtækar að sögn Arinbjörns. „Við erum orðin breytingaþreytt," segir Arinbjörn. „Við höfum verið í hálfgerðu breytingaferli síðan 1997, mannskapurinn er kominn á ystu brún."
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira