Willum: Menn spiluðu með hjartanu 14. maí 2009 21:26 Valsmenn fögnuðu í kvöld.
Valsmenn unnu þægilegan 3-1 sigur á Fjölni í kvöld á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda og fengu þar með sín fyrstu stig í Pepsi-deildinni í sumar. "Mér fannst hugarfarið svakalega sterkt í dag. Allt liðið barðist vel, menn spiluðu með hjartanu og voru staðráðnir í því að sanna sig," sagði Willum Þór Þórsson þjálfari Vals í samtali við Vísi að leik loknum. "Það var mjög mikilvægt fyrir okkur að koma hér á heimavöll og vinna sigur því fyrstu stigin eru alltaf erfið. Fjölnisliðið er hörkulið og sýndi það gegn KR þar sem þeir gátu auðveldlega unnið. Þess vegna undirbjuggum við okkur vel fyrir þennan leik og mættum grimmir. Við ákváðum að pressa þá framarlega, reyna að færa boltann hratt út á kantana til að fá fyrirgjafir og mér fannst það ganga vel í fyrri hálfleik," bætti Willum við. Valsmenn höfðu tögl og haldir fyrstu 30 mínútur leiksins og fóru illa með nokkur færi. En þá komust Fjölnismenn inn í leikinn og náðu að minnka muninn. "Mér fannst óeðlilegt að vera með 2-1 stöðu í hálfleik því við gátum klárað leikinn í fyrri hálfleik. Þetta datt niður hjá okkur síðasta korterið í fyrri hálfleik og eins fannst mér við bíða fulllengi eftir að leikurinn kláraðist í stað þess að klára hann allt til enda, en Fjölnisliðið gefur aldrei eftir," sagði Willum. Marel Baldvinsson átti stórleik í liði Vals og Willum var mjög ánægður með hans þátt í sigri liðsins. "Marel þyrsti greinilega í að spila fótbolta því hann fór á kostum hér í kvöld," sagði kampakátur Willum eftir leik.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Fleiri fréttir „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ Sjá meira