Konur sitja fastar í ofbeldissambúðum 6. nóvember 2009 06:00 heimilisofbeldi Ofbeldi er ekki tengt efnahag eða atvinnuleysi nema í samböndum þar sem aðrir áhættuþættir eru til staðar, segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Þar geta slíkar aðstæður haft áhrif.
Þess eru dæmi að konur sitji fastar í ofbeldissambúðum, þar sem þær deila óseljanlegum eignum með makanum, bæði eru með mikla skuldabyrði og þær sjá ekki fram á að geta sett á stofn og rekið nýtt heimili. Þetta segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Hún segir þetta vera eina birtingarmynd á áhrifum kreppunnar á heimilisofbeldi. Aðsókn að dvöl í Kvennaathvarfinu var mjög mikil fyrst eftir að kreppan skall á en hefur verið minni það sem af er þessu ári heldur en í fyrra, að sögn Sigþrúðar. „Hins vegar koma fleiri konur í viðtöl. Við heyrum í mörgum konum sem eru að leita sér leiðar út úr ofbeldissambandi og íhuga að koma í Kvennaathvarfið. Vissulega höfum við alltaf öðru hvoru fengið konur sem talin hefur verið trú um að þær gætu ekki staðið á eigin fótum fjárhagslega séð. En það er vissulega oft erfiðara í ákveðnum tilvikum að hrekja þær ranghugmyndir nú en oft áður." Sigþrúður segir að sumar þeirra kvenna sem hafi komið í viðtöl í Kvennaathvarfinu hafi tjáð sig um að ofbeldi í samböndum þeirra hafi aukist eftir að makinn missti vinnuna eða fjárhagserfiðleikar á heimilinu tóku að aukast. Sigþrúður segir enn fremur áberandi að erlendum konum sem leita til Kvennaathvarfsins hafi fækkað mjög mikið. Í fyrra hafi þær verið um helmingur dvalarkvenna. Fyrstu mánuðina eftir hrun hafi þær ekki sést en það sé nú að breytast aftur til fyrra horfs. „Eina skýringin á þessu sem okkur dettur í hug er sú að þær bíti frekar á jaxlinn núna og fari síður að heiman til dæmis af ótta við atvinnuleysi, þar sem dvalarleyfi getur verið tengt atvinnuleyfi eða ótta við að geta ekki framfleytt sér. Það er því miður engin ástæða til að ætla að ofbeldi gagnvart konum hafi minnkað. Við óttumst að heimilisofbeldi aukist í tengslum við bágt efnahagsástand. Þrátt fyrir allt er enn sem fyrr mikilvægt að hafa í huga að kynbundið ofbeldi á sér stað í öllum stéttum og er síður en svo bundið við efnaminni heimili, atvinnulausa eða félagslega einangrað fólk. Þeir þættir eru engu að síður áhættuþættir sem geta leitt til ofbeldis í samböndum þar sem aðrir áhættuþættir eru til staðar svo sem skortur á jafnrétti, virðingu og hæfni til að leysa úr ágreiningi á friðsamlegan hátt." jss@frettabladid.is
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Fleiri fréttir Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Sjá meira