Dómari úrskurði um þörf fyrir þvaglegg 22. júlí 2009 03:45 Friðhelgi einkalífsins Nefnd samgönguráðherra segir að með vísan í stjórnarskrárákvæði um friðhelgi einkalífsins sé rétt að krefjast úrskurðar dómara áður en þvagsýni er tekið með valdi.Fréttablaðið/Stefán
Þurfi lögregla að fá úrskurð dómara áður en þvagsýni er tekið með valdi af fólki sem grunað er um ölvunarakstur mun sá tími sem fer í að afla úrskurðarins gera aðgerðina þýðingarlausa, segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi. Í tillögum nefndar samgönguráðherra sem unnið hefur að endurskoðun á umferðarlögum er gert ráð fyrir að lögregla þurfi að afla slíks úrskurðar áður en þvagsýni er tekið með valdi. Þetta þýðir að óbreyttu að með því að neita að veita þvagsýni getur ökumaður sem grunaður er um ölvun frestað því að gefa sýni, með þeim afleiðingum að sönnunargögn geta spillst, segir Ólafur. Hann segir að nokkrar klukkustundir geti tekið að kalla út dómara, leggja fram skjöl og bíða úrskurðar í málum sem þessum. Ekki þarf að fá þvagsýni sé ökumaður staðinn að verki við ölvunarakstur. Þá dugar að taka blóðsýni til að sýna fram á ölvunarástand ökumannsins fyrir dómi. Leiki hins vegar grunur á að ökumaður hafi ekið undir áhrifum fyrir einhverju síðan þarf að taka bæði blóð- og þvagsýni. „Það er alveg ljóst að best væri að þurfa aldrei að taka þvagsýni til að sanna að viðkomandi einstaklingur sé ölvaður,“ segir Ólafur. Hann segir heppilegra að breyta lögum þannig að hægt verði að nota útreikninga byggða á tveimur blóðprufum til að sýna fram á hver áfengisprósenta í blóði ökumanns var þegar hann sat undir stýri. Í greinargerð með drögum að frumvarpi að breytingu á umferðarlögum, sem nefnd samgönguráðherra hefur skilað af sér, segir að þvagrannsókn feli í sér verulegt inngrip í líkama manns, eins og dæmin sanni. Með hliðsjón af 71. grein stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífsins sé eðlilegt að gera kröfu um úrskurð dómara. Ekki sé of mikið mál, né of tímafrekt, að bíða eftir því ferli. Nefndin vísar einnig til annarra breytinga sem hún leggur til sem muni fækka þvagsýnatökum. Þar er átt við ákvæði um að þó fíkniefni greinist í þvagi löngu eftir að þeirra er neytt varði það ekki við umferðarlög. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira