Sex stiga leikur á St James´ Park í kvöld 11. maí 2009 12:30 Alan Shearer og félgar í Newcastle verða að vinna í kvöld Nordic Photos/Getty Images
Gríðarlega mikið verður í húfi í kvöld þegar Newcastle tekur á móti Middlesbrough í fallslag í ensku úrvalsdeildinni. Liðið sem vinnur leikinn nær að koma sér upp að hlið Hull City og ef Newcastle vinnur leikinn, kæmist liðið úr fallsæti af því það er með betra markahlutfall en Hull. Alan Shearer, settur knattspyrnustjóri Newcastle, kallar leikinn þann stærsta á sínum ferli, en hann hefur reyndar lýst hverjum einasta leik hjá Newcastle með þeim orðum á endasprettinum. Gareth Southgate stjóri Middlesbrough vonast til að geta kafað í 20 ára reynslubanka sinn til að ná hagstæðum úrslitum í kvöld. "Maður hefur séð ýmislegt á tuttugu árum í boltanum og ef maður getur ekki nælt sér í reynslu í þeim leikjum, er tilgangslaust að spila þá. Flesta þessa leiki spilaði ég vissulega sem leikmaður, en ég hef lært að eiga við pressuna engu að síður," sagði Southgate. Síðustu fjórir leikir Newcastle og Boro hafa endað með jafntefli og Boro hefur ekki unnið á St James´ Park síðan árið 2001. Reyndar hefur Newcastle ekki gengið sérlega vel með Boro á heimavelli, því liðið hefur ekki unnið þá viðureign síðan árið 2004 þegar stjórinn Shearer skoraði sigurmarkið. "Leikmennirnir vita hvað er í húfi í þessum leik. Við verðum að reyna að létta pressunni og skora snemma, en við verðum líka að vera klókir. Þetta er stærsti leikur sem ég hef tekið þátt í á ferlinum," sagði Alan Shearer. Staða neðstu liða í úrvalsdeildinni (sæti, lið, leikir, stig): 15. Portsmouth 36 -38 16. Sunderland 36 -36 17. Hull City 36 -34 18. Newcastle 35 -31 19. Middlesbrough 35 -31 20. West Brom 36 -31 Smelltu hér til að sjá stöðuna í deildinni
Enski boltinn Mest lesið Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Enski boltinn Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Körfubolti Þróttur R. - Breiðablik 3-2 | Þróttarar slógu bikarmeistarana úr leik Íslenski boltinn Bríet treður upp á stórleiknum Íslenski boltinn Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma Enski boltinn Celtic tók titilinn í lokaumferðinni Fótbolti Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Fótbolti „Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ Sport Lewandowski á förum frá Barcelona Fótbolti „Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“ Golf Fleiri fréttir The Athletic: Alonso samþykkir að taka við Chelsea Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma „Ég vildi að hann væri skoskur“ Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina Heskey yngri tryggði City titil gegn United Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Benóný Breki fer á Wembley City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Birta mynd af „njósnara“ Southampton Carrick eigi skilið að fá starfið Andri Lucas skrifar undir langtímasamning Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ Munu mæla með því við Ratcliffe að ráða Carrick Heyrðu samskipti dómara í stærsta atviki tímabilsins Dagskráin í dag: Allt undir hjá City og Benóný í umspili Southampton einum sigri frá ensku úrvalsdeildinni White spilar ekki meira með Arsenal á tímabilinu De Zerbi ósáttur við dómarana: „Kannski fundu þeir fyrir pressu út af Arsenal leiknum“ Sjáðu mörkin og magnaðar vörslur hjá Kinský „Aðeins þeim sem vilja ekki að Arsenal verði meistari fannst þetta ekki vera brot“ Messan um stóra dóminn: „Þetta er bara rétt“ Tígrarnir einum sigri frá ensku úrvalsdeildinni Sjá meira