Enski boltinn

Coyle framlengir við Burnley

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Owen Coyle, stjóri Burnley.
Owen Coyle, stjóri Burnley. Nordic Photos / AFP

Owen Coyle hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Burnley til loka tímabilsins 2013.

Coyle stýrði Burnley í ensku úrvalsdeildina nú í vor en hefur nú framlengt gamla samninginn sinn um tvö ár til viðbótar.

Burnley var orðaður við nokkrar stjórastöður á Bretlandseyjum í vor, til að mynda Celtic.

Hann kom til Burnley árið 2007 eftir að hafa verið stjóri St. Johnstone í Skotlandi við góðan orðstír.

Jóhannes Karl Guðjónsson er leikmaður Burnley.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×