Tæplega hundrað frambjóðendur skiluðu ekki uppgjöri 27. október 2009 19:39
Tæplega hundrað frambjóðendur sem tóku þátt í prófkjöri eða forvali vegna þingkosninganna í vor skiluðu ekki fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar en frestur til þess rann út um helgina. Unnt er að beita fjársektum og jafnvel fangelsun, hunsi frambjóðandi viljandi að sniðganga lög um skil á fjárhagslegu uppgjöri. Fyrr á þessu ári sendi Ríkisendurskoðun frambjóðendum í prófkjörum vegna þingkosninganna í vor bréf þar sem kallað var eftir umræddum upplýsingum. Þetta er gert eftir að lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda var breytt. Samkvæmt þeim er frambjóðendum, sem eyða meira en 300 þúsund krónum í framboð sitt, gert að skila fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar. Öðrum sem eyða minna nægir að senda inn yfirlýsingu þess efnis. Frestur til að skila inn uppgjöri eða yfirlýsingu rann út um helgina. Af samtals 318 frambjóðendum sem tóku þátt í prófkjöri eða forvali vegna kosninganna skiluðu einungis 226 upplýsingum um kostnað sinn til Ríkisendurskoðunar. 31 frambjóðandi hafði skilað endurskoðuðu uppgjöri en 195 undirritaðri yfirlýsingu um að kostnaður hefði ekki verið umfram 300 þúsund krónur. Ríkisendurskoðun mun á næstunni vinna úr þeim upplýsingum sem henni hafa borist og í kjölfarið birta þær með samræmdum hætti, líkt og lög um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda kveða á um. Reiknað er með að þessi vinna muni taka einhvern tíma en stefnt er að því að birta samantekt í næsta mánuði. Ríkisendurskoðun hefur ekki heimild til að beita viðurlögum, skili frambjóðandi ekki inn tilskyldum upplýsingum. Hins vegar er ákvæði í lögunum sem segir að hver sá sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi brýtur gegn þeim geti átt von á fjársektum eða fangelsi, allt að 6 árum. Ríkisendurskoðun getur komið upplýsingum um vanskil til lögreglu, en refsivarslan er í höndum hennar. Lögin gera ekki ráð fyrir því að frambjóðandi geti sótt um frest til að skila inn umbeðnum gögnum.
Tengdar fréttir Fjórðungur frambjóðenda hefur skilað uppgjöri Aðeins lítill hluti frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjörum stjórnmálaflokkanna vegna alþingiskosninganna í vor hefur skilað fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar. Samtals hafa 83 af 321 frambjóðendum skilað inn umræddum upplýsingum, eða rúmlega fjórðungur. 7. október 2009 15:30 Aðeins þriðjungur hefur skilað uppgjöri Aðeins þriðjungur frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjörum stjórnmálaflokkanna vegna alþingiskosninganna 25. apríl síðastliðinn hefur skilað fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar. Samtals hafa 107 af 321 frambjóðendum skilað inn umræddum upplýsingum en skilafrestur rennur út 25. október. Ríkisendurskoðun flokkar skilin eftir stjórnmálaflokkum en ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort að birtur verði listi yfir þá frambjóðendur sem skila ekki uppgjöri til stofnunarinnar. 16. október 2009 14:46 Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Erlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Sinnaskipti lögreglustjórans og Þorgerður ræðir væntanlegan varnarsamning við ESB Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Sjá meira
Fjórðungur frambjóðenda hefur skilað uppgjöri Aðeins lítill hluti frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjörum stjórnmálaflokkanna vegna alþingiskosninganna í vor hefur skilað fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar. Samtals hafa 83 af 321 frambjóðendum skilað inn umræddum upplýsingum, eða rúmlega fjórðungur. 7. október 2009 15:30
Aðeins þriðjungur hefur skilað uppgjöri Aðeins þriðjungur frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjörum stjórnmálaflokkanna vegna alþingiskosninganna 25. apríl síðastliðinn hefur skilað fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar. Samtals hafa 107 af 321 frambjóðendum skilað inn umræddum upplýsingum en skilafrestur rennur út 25. október. Ríkisendurskoðun flokkar skilin eftir stjórnmálaflokkum en ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort að birtur verði listi yfir þá frambjóðendur sem skila ekki uppgjöri til stofnunarinnar. 16. október 2009 14:46