David Winnie: Gunnleifur var strippari Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. apríl 2009 10:30 Gunnleifur Gunnleifsson í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / AFP
David Winnie, fyrrum leikmaður og þjálfari KR, segir í samtali við The Sun í dag að hann minnist þess að Gunnleifur Gunnleifsson, annar markvarða íslenska landsliðsins, hafi drýgt tekjurnar sínar sem fatafella á meðan þeir voru saman í KR. „Gunnleifur var nokkuð klikkaður í markinu en mjög góður markvörður," sagði Winnie. „Það furðulega er að hann var fatafella í hlutastarfi, ef ég man rétt. En ég veit að hann hefur sagt skilið við þann hluta af lífi sínu í dag." „Margir strákanna í liðinu voru í vinnu eða námi með fótboltanum en hann var eini stripparinn." Winnie sagði enn fremur að Gunnleifur ætti góðan möguleika á því að vera í byrjunarliði íslenska landsliðsins í kvöld. Hann sagði einnig í viðtalinu að hann hafi spilað með nokkrum leikmönnum íslenska landsliðsins hjá KR - þeirra á meðal Eiði Smára Guðjohnsen, Kristjáni Erni Sigurðssyni og Stefáni Gíslasyni sem verður reyndar í banni í kvöld. „Það þýðir ekkert að gefa þeim tækifæri til að koma sér inn í leikinn því þeir munu nýta sér þau," sagði Winnie sem starfar sem lögfræðingur í London í dag. „En á móti kemur að Ísland gefur alltaf færi á sér og þá verðum við að vera á tánum."
Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira