Enski boltinn

Adebayor vill fara að vinna bikara

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Adebayor vill ekki fara í frí með tómt hjarta.
Adebayor vill ekki fara í frí með tómt hjarta. Nordic Photos/Getty Images

Emmanuel Adebayor, framherji Arsenal, er orðinn þreyttur á bikaraþurrðinni hjá Arsenal og hefur engan áhuga á að fara í sumarfrí fjórða árið í röð með tómt hjarta og enga gullmedalíu.

Arsenal hefur ekkert unnið síðan Adebayor kom til liðsins frá Mónakó í janúar 2006. Arsenal á ekki möguleika á að vinna ensku deildina en er í undanúrslitum enska bikarsins sem og í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Sem leikmaður þá dreymir mann alltaf um að vinna bikara. Þegar ég kom hingað var mér tjáð af vinum og leikmönnum að hér væri hægt að ná árangri. Síðustu þrjú ár hef ég samt farið í frí án þess að vinna bikar og með tómt hjarta. Nú er kominn tími til að breyta því," sagði Adebayor.

„Kannski vil ég vinna meira en hinir. Ég veit það ekki. Við höfum allir löngun til þess að ná árangri og það skiptir mestu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×