Enski boltinn

Gerrard íhugar að hætta árið 2013

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steven Gerrard í leik með Liverpool.
Steven Gerrard í leik með Liverpool. Nordic Photos / AFP

Steven Gerrard, leikmaður Liverpool, segir það vel koma til greina að leggja skóna á hilluna þegar að núverandi samningur hans við félagið rennur út í lok leiktíðar 2013.

Gerrard verður þá 33 ára gamall og hefur alla sína tíð leikið með Liverpool. „Ég verð orðinn 33 ára gamall og veit ekki hvort ég muni halda áfram. En ef ég hætti mun ég ekki hafa spilað með neinu öðru félagi og ég sé ekki fyrir mér að ég muni spila með öðru félagi í framtíðinni."

„Ég hef tvisvar á mínum ferli komist nálægt því að fara frá Liverpool, allra helst árið 2005. Þá var Liverpool talsvert langt frá því að vinna enska meistaratitilinn og áhugi Chelsea vakti athygli mína."

„Það var erfiður tími fyrir mig. En ég er ánægður með mína ákvörðun í dag. Hún fyllir mig stolti."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×