Whelan: Ekki möguleiki að Owen kom til Wigan Ómar Þorgeirsson skrifar 17. júní 2009 15:15 Michael Owen. Nordic photos/Getty images
Dave Whelan, stjórnarformaðurinn málglaði hjá Wigan, hefur þverneitað því að félagið sé tilbúið að bjóða Michael Owen risasamning til þess að freistast til þess að fá hinn 29 ára gamla framherja á JJB-leikvanginn. Whelan var með í kapphlaupinu þegar Owen snéri aftur í enska boltann frá Real Madrid en varð þá að láta í minni pokann fyrir Newcastle. Fjögurra ára samningur Owen við Newcastle rennur út 1. júlí næstkomandi og umboðsskrifstofa leikmannsins hefur sent út kynningarbæklinga um leikmanninn til þess að reyna að sannfæra félög í ensku úrvalsdeildinni að Owen sé enn áhættunnar virði. „Við fengum í fyrsta lagi ekki umræddan kynningarbækling í hendurnar og það er allt í lagi því við höfum ekki áhuga á leikmanninum lengur. Launakröfur hans eru út úr korti glórulausar og síðan efast ég um að hann hafi sama vilja og metnað til að standa sig í úrvalsdeildinni og hann hafði áður. Ég vona að hann nái sér á strik því ég hef miklar mætur á honum og var tilbúinn að borga fimmtán milljónir punda fyrir hann á sínum tíma. Launakröfur hans upp á 110 þúsund pund á viku eru hins vegar c.a. fjórum sinnum meira en við værum tilbúnir að borga hjá Wigan," segir Whelan. Ensku úrvalsdeildarfélögin Aston Villa og Everton eru einnig búin að lýsa því yfir að þau séu ekki á eftir Owen.
Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Sjá meira