Enski boltinn

Liverpool sagt hafa áhuga á Aroni Einari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson fagnar marki í leik með Coventry í vetur.
Aron Einar Gunnarsson fagnar marki í leik með Coventry í vetur. Nordic Photos / AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool er sagt vera að íhuga að bjóða fimm milljónir punda í Aron Einar Gunnarsson, leikmann Coventry og íslenska landsliðsins.

Aron Einar vakti mikla athygli með Coventry á sínu fyrsta tímabili í ensku B-deildinni en þangað kom hann frá AZ Alkmaar í Hollandi fyrir ári síðan.

Hann kom við sögu í 40 leikjum með Coventry á leiktíðinni og hafa fjölmörg félög fylgst með honum í vetur. Þeirra á meðal eru Blackburn, Fulham og Celtic.

Fyrir hjá Liverpool er unglingalandsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson sem kom til liðsins nú í janúar síðastliðnum.

Þetta kemur fram í enskum fjölmiðlum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×