Enski boltinn

Crouch: Sýndum mikinn karakter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Crouch fagnar hér með félögum sínum í dag.
Crouch fagnar hér með félögum sínum í dag. Nordic Photos/Getty Images

Peter Crouch var hetja Portsmouth í dag er liðið lagði Everton, 2-1. Crouch skoraði bæði mörk Portsmouth í leiknum og sá til þess að liðið kæmist þrem stigum frá botnsvæðinu.

„Þetta var risasigur hjá okkur í dag. Fólk gat séð það á strákunum í lokin hversu miklu þessi sigur skipti fyrir þá, stuðningsmennina og alla hjá félaginu. Við lögðum mikið á okkur til að ná þessum úrslitum í dag og sem betur fer skilaði það okkur þrem stigum," sagði Crouch.

„Við byrjuðum illa en sem betur fer sýndum við mikinn karakter og komum til baka. Við snérum leik við en fyrr í vetur hefðum við ekki endilega gert það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×