Perez: Geri allt sem ég get til að fá Ronaldo Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. júní 2009 19:30 Cristiano Ronaldo fagnar marki í leik með Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Florentino Perez, forseti Real Madrid, segir að hann ætli að gera allt sem í hans valdi stendur til að fá Cristiano Ronaldo til félagsins nú í sumar. Gengið var frá kaupum Real Madrid á Brasilíumanninum Kaka seint í gærkvöldi. Kaupverðið var 59 milljónir punda eða um 12,3 milljarða króna. Það gerir Kaka að dýrasta knattspyrnumanni sögunnar. Ef Perez ætlar sér að kaupa Ronaldo er líklegt að Kaka verði ekki sá dýrasti lengi. „Kaupin á Kaka eru bara þau fyrstu í röðinni," sagði Perez í samtali við spænska fjölmiðla. „Ég mun gera allt sem ég get til að fá Cristiano Ronaldo til félagsins." „Það eina sem ég hef gert er að feta sömu slóð og Santiago Bernabeu gerði," sagði Perez en Bernabeu er frægur fyrir að gera Real Madrid að því stórveldi sem það er í dag. Hann fékk til að mynda Alfredo di Stefano til félagsins á sínum tíma. „Það þýðir að fá bestu leikmenn heims til okkar, bestu leikmenn Spánar og með besta unglingastarfið." Xabi Alonso, leikmaður Liverpool, hefur einnig verið orðaður við Real Madrid en Perez gerði lítið úr þeim sögusögnum. „Hann er frábær leikmaður en hann spilar með stóru félagi og ég hef ekki heyrt af því að það ætli sér að selja hann."
Spænski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Sjá meira