Ólíklegt að ríkið komi að uppbyggingu á Valhallarreitnum Magnús Már Guðmundsson skrifar 20. ágúst 2009 11:52 Hótel Valhöll brann til kaldra kola 10. júlí. Mynd/Ingólfur Helgi Tryggvason
Ólíklegt er að afkoma ríkissjóðs á næstum árum leyfi byggingu nýs húss á Þingvöllum í stað þess sem brann í júlí, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Hún hefur ekki hug á að breyta fyrirkomulagi yfirstjórnar þjóðgarðsins á Þingvöllum. Þetta kemur fram í svari Jóhönnu við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um uppbyggingu á Þingvöllum. Hótel Valhöll brann til kaldra kola 10. júlí. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um hvort byggja eigi að nýju á reitnum. Ný Þingvallanefnd var skipuð 11. ágúst. Jóhanna hefur áður sagt að ekki sé sjálfgefið að hótel verði endurbyggt á reitnum í fyrri mynd. Fram kemur í svari hennar að talið sé að rekstrarhæft hótel á Þingvöllum þurfi að hafa yfir að ráða allt að 80 gistiherbergjum. Umfang sem fylgir hótelrekstri rúmast því varla á Valhallarreitnum.Hús hugsanlega reist fjær vatninu Þar segir að bæjarstæði Valhallar sé á viðkvæmum stað með tilliti til landsigs og Þingvallavatns og mikilvægis verndunar þess. Jóhanna segir að ef til kæmi þess að samþykkt yrði að reisa samkomuvettvang á vegum ríkisins á Þingvöllum komi til greina að húsinu verði valinn staður fjær vatninu. „Í húsinu mætti gera ráð fyrir veitingaaðstöðu, aðstöðu fyrir minni ráðstefnur á vegum ríkisins, aðstöðu fyrir Alþingi og e.t.v. lítils háttar gistiaðstöðu. Ólíklegt er að afkoma ríkissjóðs leyfi byggingu af þessum toga á næstu árum," segir Jóhanna. Söguleg og menningarleg sérstaða Jóhanna telur ekki vera ástæðu til að breyta fyrirkomulagi yfirstjórnar þjóðgarðsins á Þingvöllum. Sérstaða svæðisins sé fyrst og fremst söguleg og menningarleg.
Mest lesið „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Erlent Hermenn bauluðu á Biden, Newsom og blaðamenn Erlent Vinnuslys við Suðurlandsbraut Innlent Halla flytur hátíðarávarpið í stað Kristrúnar Innlent Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Innlent Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Erlent Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Innlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Innlent Kolbrún svarar í engu kröfu um að hún skuldi afsökunarbeiðni Innlent Fleiri fréttir „Þingið hefur verið svipt aðhaldi sínu“ Ógn loftslagsbreytinga við fæðuöryggi stórlega vanmetin Fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga án útskýringa Hvalurinn kominn út á haf Fastir í flugstöðinni í fjóra daga og Trump-Tesla í Keflavík Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Máttu ekki tjalda á Arnarhóli Sterametið mölbrotið í Leifsstöð: Lögðu hald á um 9 lítra af sterum og 44 þúsund töflur Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Najeb Kolbrún svarar í engu kröfu um að hún skuldi afsökunarbeiðni Vinnuslys við Suðurlandsbraut Fótboltagláp, ráfandi djammarar og nú fljúgandi nefhjól Stendur í stafni fyrir samevrópska nefnd WHO um lýðheilsu Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Stórauka þjónustu Strætó í lok sumars Bein útsending: Byggjum til framtíðar – með gæði, heilnæmi og sjálfbærni að leiðarljósi Miklar breytingar hjá Play og nefhjól í lausu lofti Háhyrningurinn synti rakleiðis í strand Halla flytur hátíðarávarpið í stað Kristrúnar Olíudreifing sýknuð af tug milljóna króna bótakröfu Costco Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Hnattræn hlýnun gerði hitabylgjuna í maí hlýrri og mun líklegri en ella Háhyrning rak á land í Grafarvogi Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Sjá meira