Getum unnið alla ef við spilum eins og móti Real Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2009 11:30 Rafael Benitez, stjóri Liverpool, er ekki alltaf sáttur við leik liðsins. Mynd/GettyImages
Rafael Benitez fullvissaði alla á blaðamannafundinum fyrir leik Manchester United og Liverpool á Old Trafford í dag að Liverpool geti vel unnið upp sjö stiga forskot United sem á auk þess einn leik inni. Liðin mætast eftir rúman klukkutíma í beinni á Stöð 2 Sport 2. „Þeir eru ekki ósnertanlegir og auðvitað trúi ég því að við getum unnið," sagði Rafael Benitez, stjóri Liverpool en hann viðurkennir að Liverpool verði að vinna í dag til að halda meistaravoninni lifandi. „Ef við vinnum ekki þennan leik þá verður mjög erfitt að vinna titilinn. Ef við ætlum að vera með í titilbaráttunni þá verðum við að vinna þennan leik," sagði Benitez. Liverpool-liðið átti snildarleik í vikunni þegar spænsku meistararnir í Real Madrid yfirgáfu Anfield með skottið á milli lappanna eftir 4-0 tap. „Ef við spilum eins og við gerðum á móti Real Madrid þá getum við unnið alla. Það er allt hægt. Við þurfum bara að spila á sama tempói og halda boltanum eins vel og við gerðum í þeim leik," sagði Benitez. „Það er mín tilfinning að allir séu klárir og hlakki til þess að spila þennan leik alveg eins og á móti Real í vikunni," sagði Benitez.
Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira