Magnús Gylfason spáir í spilin fyrir leiki kvöldsins 28. maí 2009 12:02 Topplið KR fær Íslandsmeistarana í heimsókn í kvöld og Magnús spáir því að FH hirði öll stigin
Það verður frábær fimmtudagur í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld þar sem sex leikir verða á dagskrá. Um er að ræða fimmtu umferð deildarinnar. Segja má að allir leikirnir í kvöld séu mjög áhugaverðir fyrir misjafnar sakir, en stórleikurinn er án nokkurs vafa viðureign toppliðs KR og Íslandsmeistara FH í vesturbænum klukkan 20. Þá verður áhugavert að fylgjast með Reykjavíkurslag gömlu erkifjendanna Fram og Vals og spútniklið Fylkis sem er í öðru sæti deildarinnar sækir nýliða Stjörnunnar heim í Garðabæinn. ÍBV er enn án stiga á botni deildarinnar og liðið sækir Fjölnir heim í kvöld. Grindvíkingar munu reyna að fylgja eftir ágætum leik á Hlíðarenda í síðustu umferð þegar þeir taka á móti Þrótti á heimavelli og þá verður vafalítið fjör á Kópavogsvellinum þar sem Breiðablik tekur á móti Keflavík. Allir leikir kvöldsins nema leikur KR og FH hefjast klukkan 19:15. Vísir.is verður á öllum leikjunum í kvöld og verður með umfjallanir og viðtöl eftir alla leiki. Þá verður hægt að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni eins og venjulega. Vísir sló á þráðinn til Magnúsar Gylfasonar sérfræðings á Stöð 2 Sport og fékk hann til að spá í spilin fyrir leiki kvöldins. Breiðablik-Keflavík kl. 19:15 "Ég spái því að Breiðablik vinni þennan leik 1-0. Keflavík hefur dottið svakalega niður á útivöllum þó þeir séu með svakalegt lið. Ég held að Breiðablik rífi sig upp úr þessum tveimur töpum og vinni óvæntan 1-0 sigur."Stjarnan-Fylkir kl. 19:15 "Ég held að Fylkir vinni þennan leik 3-0. Ég held að Stjörnuliðið hafi komið dálítið harkalega niður á jörðina í leiknum gegn FH um daginn og svo eru þeir í miklum markmannsvandræðum. Fylkir hefur byrjað mótið mjög vel og þeir eru bara með hörkulið."Grindavík-Þróttur kl. 19:15 "Grindavík vinnur þennan leik 2-0. Þróttarar hafa verið rosalegt jójó lið en Grindvíkingar eru komnir með bullandi sjálfstraust eftir góð úrslit gegn Val. Það er allt í gangi hjá Grindvíkingum og ég held að þetta verði öruggur 2-0 sigur hjá þeim."Fjölnir-ÍBV kl. 19:15 "ÍBV er komið algjörlega upp að vegg og verður að ná í stig. Ég held að þeir verði varnarsinnaðir í kvöld líkt og þeir voru í Garðabænum um daginn, en þar voru þeir hræðilegir fram á við. ÍBV verður að ná í stig ef þetta á ekki að verða verulega slæmt hjá þeim, þannig að ég ætla að spá 0-0 jafntefli. Eyjamenn ná ekki að skora en þeir verða þéttir til baka."Fram-Valur kl. 19:15 "Þetta er mjög athyglisverður leikur því bæði lið hafa valdið smá vonbrigðum það sem af er og hefðu kosið að vera með fleiri stig. Valsmenn eru komnir upp að vegg og ég ætla að spá 1-1 jafntefli þarna og að bæði lið verði mjög ósátt við úrslitin."KR-FH kl. 20:00 (beint á Stöð 2 Sport) "Ég vona mótsins vegna að þetta verði 1-1 jafntefli, en ég held að FH vinni þennan leik 2-1. Maður vill ekki að FH fari að stinga af. Þeir eru komnir á gott ról eftir tap í fyrsta leik og það þarf aðeins að hægja á þeim. Ég vona svo sannarlega að KR nái aðeins að stíga á þá, en sagan segir okkur annað. KR er með fínasta lið í ár en ég segi 2-1 fyrir FH."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Körfubolti Standa með Eygló í martröðinni Sport Týndur í fjórtán daga Fótbolti Barnabarn Idi Amin dæmt úr leik fyrir að skalla andstæðing Sport Howe hættur hjá Newcastle Enski boltinn Evrópuþjóðirnar samþykktu að sniðganga HM Fótbolti Fljótasti hvíti maður sögunnar Sport Enska deildin mótmælir ákvörðunum Infantino Fótbolti Tvítugur strákur fær næstum því tólf milljarða króna samning Sport Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta er kvikindisleg spurning“ Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Valur situr sem fastast á botninum Uppgjörið: ÍBV - FH 2-2 | Eyjakonur sóttu stig á lokamínútunni Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Nefbraut samherja sinn á æfingu hjá Keflavík „Við þurfum að vera klárir í hvað sem er“ „Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ „Ég þarf bara að teipa þetta aðeins“ „Ekki það sem við lögðum upp með“ Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Njarðvík marði botnliðið Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig Tókst á við stjörnurnar í La Liga en heldur nú til Þórs Sölvi keyptur til KR „Frábær leikmaður og skemmtilegur karakter sem við munum sakna“ Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Freyja seld til Svíþjóðar Valdi tíu verstu augnablik Stjörnumanna á Skaganum: „Eins og þeir væru drukknir“ Dagskráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eldlínunni „Góðir tímar framundan“ „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ „Mjög ánægður með margt í leiknum en óánægður með jafntefli“ Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Fyrirliði Njarðvíkur til Vals Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Sjá meira