Hvalir gætu verið hættulegir 8. september 2009 19:16
Þau nánu kynni sem tókust milli manna og steypireyðar á Ströndum á dögunum eru talin einstök hér við land. Hvalasérfræðingur við Hafrannsóknastofnun varar þó eindregið við því að menn reyni slíkt, enda geti stórhveli reynst stórhættuleg og hæglega sökkt smábátum.Við sáum í fréttum í gær þegar tveir Strandamenn, feðgar, klifruðu upp á bak á lifandi steypireyði í Steingrímsfirði. Faðirinn, Magnús Kristjánsson, lýsti því einnig hvernig hann gat losað kaðal af sporðinum meðan hvalurinn lét hann óáreittan. Ekki er vitað til þess að menn hafi áður komist í svo náið samneyti við villt stórhveli hérlendis, að sögn Droplaugar Ólafsdóttur, hvalasérfræðings hjá Hafrannsóknastofnuninni.Hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Norðursiglingu á Húsavík þekkja menn dæmi þess að kafarar hafi synt með með hnúfubak og steypireyði á Skjálfandaflóa, en vita ekki til þess að þar hafi menn farið á bak á hval. Mönnum er ráðlagt að varast slíkt, og segir Droplaug að þetta geti verið stórhættulegt enda sé steypireyður stærsta dýr jarðar.Menn ættu einnig að geta varúðar þegar tóg er fest milli báts og hvals en fram kom í gær að hvalnum tókst að draga bátinn afturábak á sjö mílna hraða. Droplaug segir að hvalur geti hæglega dregið smábát á kaf.Við Steingrímsfjörð töldu menn sig ná samskiptum við hvalinn. Droplaug segir félagsatferli frekar þekkt meðal tannhvala, höfrunga, háhyrninga og búrhvala, enda séu þeir hjarðdýr, - en fáar rannsóknir séu til um atferli skíðishvala.Droplaug segir ekki hægt að útiloka að þarna hafi myndast einhver tengsl en telur þó að ekki ætti að leggja einhverja mannlega merkingu í atferli hvala, sérstaklega við aðstæður sem þessar.
Mest lesið Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Innlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Fleiri fréttir Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Sjá meira