Skuldin tífaldaðist 18. ágúst 2009 04:45 Ragnheiður Dögg Agnarsdóttir
Skuld vegna vangoldinnar brunatryggingar hjá Tryggingamiðstöðinni (TM) upp á 1.549 krónur er komin upp í 14.613 krónur hjá einstaklingi sem seldi íbúðina sína í janúar síðastliðnum. Þrátt fyrir að hann seldi íbúðina í janúar nær greiðslutímabilið frá 1. september 2008 til 3. mars 2009 og hefur skuldin því nálega tífaldast á um ellefu mánuðum. Viðkomandi fékk í hendurnar bréf frá lögmannsstofunni Lögmáli í gær. Í bréfinu er sagt að ef krafan verði ekki greidd verði hún innheimt með aðför og fasteignin seld á uppboði, án dóms, sáttar eða fjárnáms. Ragnheiður Dögg Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingsþjónustu TM, segir málið óheppilegt. Hins vegar hafi innheimtan verið með eðlilegum hætti. Allar kröfur fari í innheimtu eftir þriðju ítrekun. Þá sé krafan komin úr höndum TM og fari eftir taxta lögmannsstofunnar. „Við nánari skoðun á þessu máli [í gær] kom þó í ljós að það hefði mátt ítreka betur þessa lokaniðurstöðu og við myndum skoða það í þessu tilviki að leysa úr málinu með einhverjum öðrum hætti," segir Ragnheiður. Krafan er eftirstöðvar af lokauppgjöri við TM en eftirstöðvarnar sjálfar fóru ekki í ítrekun. „Vel mætti skoða í tilvikum sem þessum að bæta við ítrekunum," segir Ragnheiður, sem segir mál af þessu tagi afar fátíð. Elvar Örn Unnsteinsson, einn eigenda Lögmáls, segir að ekki sé gott þegar smátölur fari í vanskil. Venjulega sé Lögmál ekki að innheimta svona lítil gjöld en gjaldið er hins vegar lögboðið og nýtur lögverndaðs réttar eins og fasteignagjöld. Sama fasta gjaldið er á kröfum hvort sem höfuðstóllinn er 1.500 krónur eða fimmtán milljónir, að sögn Elvars, því sama vinnan er á bak við innheimtuna. Hjá lögmönnum hafi þróunin verið að minnka vægi prósenta af höfuðstólnum í innheimtu og auka vægi fastra gjalda. Dráttarvextir eru aðeins 352 krónur af kröfunni. Teknar eru 8.302 krónur í innheimtuþóknun, 1.500 krónur vegna vinnu við kröfuna, 1.000 krónur fyrir veðbókarvottorð og 2.402 krónur fyrir virðisaukaskatt. Ef krafan er greidd innan tíu daga mun vera gefinn fimmtíu prósenta afsláttur af þóknuninni og virðisaukaskattinum og lækkar krafan þá um 5.352 krónur. vidir@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Sjá meira