Margrét Lára: Ég er komin aftur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. ágúst 2009 18:44 Margrét Lára fagnar einu marka sinna í dag. Mynd/Daníel
Margrét Lára Viðarsdóttir var hæstánægð með sigurinn á Serbum í dag og ekki síst þau fjögur mörk sem hún skoraði í leiknum. Leiknum lauk með 5-0 sigri en Margrét Lára skoraði fyrstu þrjú mörkin og svo það síðasta í leiknum. Fyrir þennan leik hafði hún skorað eitt mark í þeim sjö landsleikjum sem höfðu farið fram á árinu auk þess sem það hefur gengið á ýmsu hjá henni í sænsku úrvalsdeildinni. „Það var virkilega góð tilfinning að skora í dag enda er þetta búið að vera upp og niður hjá mér í ár. En ég held bara að ég sé komin aftur," sagði hún eftir leikinn í dag. „Liðið er í toppstandi og við erum allar búnar að leggja hart að okkur fyrir EM. Leikmenn hafa verið að taka stórar ákvarðanir til þess eins að verða betri og ég held að það sé að skila sér nú." „Mér fannst við þó ekki byrja nægilega vel í þessum leik í dag - við vorum heldur seinar í gang. Þetta var betra hjá okkur í seinni hálfleik." „En það verður þó að hafa það í huga að við höfum verið að spila við mun sterkari lið á þessu ári og því aðallega verið að liggja í vörn og beita skyndisóknum. Nú vorum við aðallega með boltann. Við vorum pínulítið ryðgaðar en hjólin voru farin að snúast í seinni hálfleik." Þetta var síðasti leikurinn fyrir úrslitakeppni EM í Finnlandi sem hefst í þarnæstu viku. „Það er virkilega gott að fara inn í það mót með sjálfstraustið í hámarki," bætti Margrét Lára við.
Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Körfubolti Fleiri fréttir Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Emilía hetja RB Leipzig Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Sjá meira