Innlent

Fyrirvararnir kalla ekki á viðræður um nýtt samkomulag

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon. Mynd/Daníel Rúnarsson
Þær breytingartillögur sem meirihluti fjárlaganefndar Alþingis samþykkti í nótt varðandi Icesave samkomulagið kalla ekki á viðræður um nýtt samkomulag við Breta og Hollendinga, að mati Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra.

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins var afgreitt út úr fjárlaganefnd Alþingis klukkan tvö í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir fyrirvaranna það mikla að gera verði Bretum og Hollendingum nýtt tilboð.

Ráðherrann segist vera sáttur með efnislega niðurstöðu fjárlaganefndar. „Ég tel að þetta séu málefnalegir, sanngjarnir og útskýranlegir skilmálar sem að viðsemjendur okkar hafa vonandi skilning á."

Steingrímur er mjög ánægður með að fjárlaganefnd hafi lokið afgreiðslu málsins. „Það góða fólk á hrós og heiður skilið fyrir mikla vinnu. Í öðru lagi er ég afar ánægður með þá breiðu samstöðu sem tókst um afgreiðslu málsins. Ég held að þetta sé málinu sjálfinu, þjóðinni og þinginu mjög til framdráttar."




Tengdar fréttir

Samkomulag um Icesave

Samkomulag náðist í fjárlaganefnd Alþingis um fyrirvara vegna Icesave samninganna á þriðja tímanum í nótt. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn standa að samkomulaginu, eftir því sem fréttastofa RÚV fullyrðir.

Þór Saari sáttur með niðurstöðuna

„Við lögðum fram margvíslegar breytingartillögur og fengum þær allar inn. Þess vegna erum við með. Annað hefði verið óheiðarlegt,“ segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, um breytingartillögur fjárlaganefndar við frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins. Álitið var afgreitt út úr nefndinni í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks.

Höskuldur: Ekki komið til móts við framsóknarmenn

Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í fjárlaganefnd, segir að það hafi alltaf verið vilji hjá flokknum að reyna að ná fram þverpólitískri sátt í Icesave málinu. Hins vegar hafi ekki verið komið til móts við flokkinn og því hafi farið sem fór. Allir flokkar nema Framsóknarflokkurinn styðja breytingatillögur meirihluta fjárlaganefndar vegna Icesave.

Samkomulag í höfn

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins var afgreitt út úr fjárlaganefnd Alþingis klukkan tvö í nótt með stuðningi allra flokka nema Framsóknarflokks, líkt og greint var frá hér á Vísi í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×