Biskup hafi vald til að flytja séra Gunnar 16. október 2009 12:14
Biskup Íslands telur að séra Gunnari Björnssyni beri að víkja frá Selfossi, með vísan í lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Gunnar ætlar sér hvergi og hefur boðað til fundar með stuðningsmönnum á Selfossi í kvöld. Biskup Íslands skrifaði séra Gunnari Björnssyni og bauð honum að taka að sér embætti sérþjónustuprests við Biskupsstofu í Reykjavík. Þetta kom til í kjölfar kynferðisbrotamáls, sem kom upp fyrir um tveimur árum. Hann var sýknaður í Hæstarétti af ákæru um kynferðislegt áreiti við unglingsstúlkur í söfnuði hans á Selfossi. Séra Gunnar viðurkenndi hins vegar tiltekna háttsemi fyrir dómi, þótt ekki væri hann sakfelldur. Sérstök úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar úrskurðaði svo að hann hefði sýnt af sér háttsemi sem prestur hvorki á né má sýna sóknarbörnum. Þetta átti meðal annars við um kossa og snertingu, og ekki síst að hann hafi leitað sér huggunar hjá barnungum stúlkum. Þetta sé ekki í samræmi við siðareglur presta; semsagt siðferðisbrot. Haft var eftir Séra Gunnari í gær, að hér skipti dómur Hæstaréttar mestu máli og hann hygðist hvergi fara. Samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu, telja menn að Gunnar eigi ekkert val. Honum beri að koma til Reykjavíkur að boði Biskups. Samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, getur stjórnvald, sem skipað hefur mann í embætti, flutt hann úr einu embætti í annað, enda heyri bæði embættin undir stjórnvaldið. Þetta stjórnvald er biskup. Eysteinn Ó. Jónasson, formaður Sóknarnefndar, segir að nefndin sé einhuga í þeirri afstöðu sinni að Gunnar komi ekki aftur til starfa á Selfossi. Söfnuðurinn sé klofinn vegna séra Gunnars og farsælast yrði að hann viki. Séra Gunnar auglýsir í Dagskránni, fréttablaði fyrir austan fjall, að hann boði til fundar í kvöld á Hótel Selfossi. Allir séu hjartanlega velkomnir.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira