Framsóknarmenn vilja ganga lengra í Icesave fyrirvörum Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 20. ágúst 2009 13:14 Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Framsóknarmenn vilja kveða fastar að orði í lagalegum fyrirvörum ríkisábyrgðar Icesave samningsins en meirihluti fjárlaganefndar. Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknar í fjárlaganefnd, hefur nú lagt fram varabreytingartillögur við fyrirvara fjárlaganefndar verði frávísunartillaga þeirra ekki samþykkt. Í fyrirvörum sem nefndin hefur lagt fram er gert ráð fyrir því að fáist úr því skorið að ábyrgð á Tryggingasjóði innistæðueigenda hvíli ekki á hinu opinbera geti Ísland gengið til viðræðna um áhrif þeirrar niðurstöðu á lánasamningana við Breta og Hollendinga. Framsóknarmenn vilja hins vegar að ríkisábyrgðin falli niður fari svo, og beri Tryggingarsjóði innistæðueigenda ekki að greiða hærri fjárhæð en til var í sjóðnum við upphaf bankahrunsins. Hið sama gildi ef Evrópulöggjöfin tekur breytingum eða verði túlkuð Íslendingum í hag, eða ef í ljós komi að skaði hafi hlotist af aðgerðum breskra og hollenskra stjórnvalda fyrir þrotabú Landsbankans. Þá vilja Framsóknarmenn einnig fella niður ríkisábyrgðina á eftirstöðvum lándsins ef greiðslubyrði samninganna er meiri en nemur ákveðnu hámarki hagvaxtar. þegar þar að kemur Fyrirvarar fjárlaganefndar gera hins vegar ráð fyrir að gengið sé til viðræðna við viðsemjendurna ef greiðslubyrðin verður meiri, en ella takmarkist ríkisábyrgðin við hámarkið. Framsóknarmenn vilja að auki bæta við nýjum fyrirvara í frumvarpið. Til að fyrirbyggja greiðslufall ríkissjóðs vilja þeir þannig fella ríkisábyrgðina niður ef hlutfall erlendra skulda þjóðarbúsins af landsframleiðslu fer yfir 240 prósent, ef hlutfall erlendra skulda opinberar aðila af skatttekjum fer yfir 250 prósent eða ef hlutfall erlendra afborgana og vaxta af útflutningstekjum fer yfir 150 prósent.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira