Enski boltinn

Tottenham vann Asíu-bikarinn - tvenna frá Robbie Keane

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Robbie Keane var á skotskónum í dag.
Robbie Keane var á skotskónum í dag. Mynd/AFP

Robbie Keane skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Tottenham á Hull í úrslitaleik Asíu-bikarsins, æfingamóts sem fram fer í Peking í Kína.

Robbie Keane skoraði fyrsta markið á 17. mínútu eftir sendingu frá Luka Modric og bætti öðru marki við á 68. mínútu úr vítaspyrnu eftir að Jermain Defoe var felldur.

Aaron Lennon skoraði þriðja og síðasta mark Tottenham eftir fyrirgjöf frá Kyle Naughton.

West Ham United varð í 3. sæti eftir 2-0 sigur á Peking-liðinu Guoan þar sem Danny Gabbidon og Zavon Hines skoruðu mörkin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×