Líta á þetta sem þjóðþrifamál 25. júlí 2009 05:00 Hagfræðistofnun stefnir að því að skila áliti sínu eftir verslunarmannahelgi. „
Við miðum við að það taki um tíu daga að klára þetta og þetta verður því tilbúið eftir verslunarmannahelgina," svarar Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, spurningu um hversu langan tíma það taki fyrir stofnunina að skila áliti um Icesave. Fjárlaganefnd fól Hagfræðistofnun, á fundi sínum á fimmtudag, að skoða álit Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins á Icesave-samningnum, sem lögð voru fyrir fjárlaganefnd á dögunum, og meta þær forsendur sem lágu að baki þeim álitum. Icesave-samningurinn verður ekki ræddur á þingi fyrr en álit Hagfræðistofnunar liggur fyrir. „Við leggjum mat á þær forsendur og metum hvort þær séu raunhæfar," segir Gunnar. Aðspurður segist hann gera ráð fyrir að fá aðgang að öllum þeim gögnum sem lágu að baki álitunum tveimur. Margir koma að áliti Hagfræðistofnunar, að sögn Gunnars, en þrír starfa hjá stofnuninni í fullu starfi og nokkrir í hlutastarfi. Einnig er gert ráð fyrir að leitað verði álits sérfræðinga innan hagfræðideildar Háskólans. En hvað eru þetta miklir peningar sem þið fáið fyrir þetta? „Við lítum á þetta sem þjóðþrifamál og þetta verður svo sem ekki neitt gróðaverkefni," segir Gunnar. - vsp
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira