Innlent

Birkir Jón sigraði Höskuld

Þingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Höskuldur Þórhallsson.
Þingmennirnir Birkir Jón Jónsson og Höskuldur Þórhallsson.

Birkir Jón Jónsson er nýr oddviti Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Kosið var um átta efstu sætin á lista flokksins á kjördæmaþingi á Egilsstöðum í dag. Höskuldur Þórhallsson varð annar og Hulda Aðalbjarnardóttir hafnaði í þriðja sæti.

Leiðtogi framsóknarmanna undanfarin ár, Valgerður Sverrisdóttir, sækist ekki eftir endurkjöri. Flokkurinn fékk þrjá þingmenn kjörna í Norðausturkjördæmi í þingkosningunum 2007.

Alls greiddu 928 atkvæði.

 

1. Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, með 505 atkvæði í 1. sæti.

2. Höskuldur Þór Þórhallsson, alþingismaður, með 647 atkvæði í 1.-2. sæti.

3. Huld Aðalbjarnardóttir menningar-og fræðslufulltrúi Norðurþings, með 509 atkvæði í 1.-3. sæti.

4. Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri, með 340 atkvæði í 1.-4. sæti.

5. Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjálfi, með 448 atkvæði í 1.-5. sæti.

6. Hallveig Björk Höskuldsdóttir, leiðtogi í málmvinnslu Alcoa, með 463 atkvæði í 1.-6. sæti.

7. Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi og tamningamaður, með 497 atkvæði í 1.-7. sæti.

8. Anna Kolbrún Árnadóttir, sérkennari,með 397 atkvæði í 1.-8. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×