Enski boltinn

Arshavin segist eiga mikið meira inni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rússinn segist bara rétt vera að byrja hjá Arsenal.
Rússinn segist bara rétt vera að byrja hjá Arsenal. Nordic Photos/Getty Images

Rússinn Andrey Arshavin lofar stuðningsmönnum Arsenal því að von sé á miklu meira frá honum á næstunni. Arshavin kom til Arsenal í febrúar og hefur sýnt snilldartakta inn á milli.

„Ég er bara rétt að kynnast liðsfélögum mínum. Stundum veit ég ekki hvert ég á að fara, hvernig að hlaupa eða hvernig ég eigi að nota eyðurnar. Stundum spila ég vel en ég vildi gjarna sýna það allan tímann," sagði Arshavin.

„Ég verð betri með hverjum leik og ég mun verða betri. Stjórinn verður svo að finna út úr því hvar sé best að nota mig. Ef við spilum 4-4-2 þá tel ég best að nota mig sem annan framherjann."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×