Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Karli Sigtryggssyni fæddum árið 1993. Hann fór að heiman á miðvikudag í síðustu viku, en ekki hefur spurst til hans frá því á föstudag. Hann var þá á Selfossi.
Karl er 170 sentímetrar að hæð, rúmlega 70 kíló að þyngd og með stutt dökkt hár. Hann var klæddur í ljósar buxur, svartan bol, svarta hettuúlpu og hvíta skó.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Karls eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 480-1010.
Lögreglan lýsir eftir Karli
