Reid sendir Shinawatra tóninn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. maí 2008 11:30 Thaksin Shinawatra, eigandi Manchester City. Nordic Photos / Getty Images
Peter Reid, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester City, hefur gagnrýnt eiganda félagsins, Thaksin Shinawatra, fyrir að ætla reka Sven-Göran Eriksson knattspyrnustjóra liðsins. Breskir fjölmiðlar hafa að undanförnu sagt að Shinawatra ætli að reka Eriksson í lok tímabilsins en þeir hafa þó hvorugur staðfest þetta. Mikil óánægja er meðal leikmanna City. „Það yrði fáranleg ef Sven myndi fara," sagði Reid. „Þá þyrftum við að fara á byrjunarreit aftur. Ef hann byrjar á því að fara að hæðast að stuðningsmönnum félagsins mun það hafa sínar afleiðingar." City byrjaði mjög vel á tímabilinu en hefur átt erfitt uppdráttar eftir áramót. Engu að síður er öruggt að liðið verði á meðal efstu níu á tímabilinu. „Thaksin verður að vakna til lífsins. Öll félög sem njóta velgengni njóta stöðugleika og það hefur City ekki sem stendur. Eriksson hefur staðið sig afar vel. Það er alltaf erfitt að koma saman liði með átta eða níu nýjum leikmönnum og hefur Eriksson staðið sig betur en ég átti von á." „Það skiptir ekki máli hvað fólk segir um fótboltafélög. Stuðningsmennirnir sem borga sig inn á leikina eru hinir sönnu eigendur. Ef þeir hætta að máta á leiki eru fótboltafélögin einskis virði. Ég held að Thaksin þurfi að taka sig taki. Það er kannski í lagi að stjórna landi en stundum er erfiðara að reka fótboltafélag." Thaksin Shinawatra er fyrrum forsætisráðherra Tælands.
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira