Enski boltinn

Ronaldo reiknar með að verða tekinn í sátt

NordicPhotos/GettyImages

Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United reiknar með að fá góðar viðtökur á Old Trafford ef svo fer að hann spili sinn fyrsta leik eftir ökklaaðgerð í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið.

Reiknað er með því að Ronaldo muni koma við sögu gegn Villarreal á miðvikudagskvöldið, en ef svo er, mun væntanlega bíða hans að vinna nokkra af stuðningsmönnum United aftur á sitt band eftir Real Madrid-ævintýrið í sumar.

Ronaldo var orðaður við spænska stórveldið svo vikum og mánuðum skipti áður en hann féllst loks á að vera um kyrrt í Manchester.

"Þegar ég klæðist búningi Manchester United, gef ég alltaf allt sem ég á. Ég er þegar búinn að skrifa nafn mitt í sögu United og stuðningsmennirnir munu elska mig um leið og ég spila," sagði Ronaldo í samtali við Sun í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×