Ferguson: Sigur kemur okkur í frábæra stöðu 18. apríl 2008 18:15 NordcPhotos/GettyImages
Sir Alex Ferguson segir að sigur sinna manna í Manchester United gegn Blackburn á morgun kæmi liðinu í mjög góða stöðu í baráttunni um meistaratitilinn. United spilar þá leik sem það á til góða á Chelsea og getur náð fimm stiga forystu með sigri. Það er þó ljóst að sigurinn verður ekki gefinn gegn fyrrum United-manninum Mark Hughes og lærisveinum hans í Blackburn á Ewood Park. "Ef við vinnum á laugardaginn setur það okkur í frábæra stöðu á lokasprettinum. Við viljum að sjálfssögðu vinna leikinn og komast aftur í fimm stiga forystu. Við fengum óvæntan bónus á mánudaginn (þegar Chelsea tapaði stigum) og við getum ekki beðið um meira en það. Nú er þetta í okkar höndum og vonandi náum við að klára leikinn gegn Blackburn," sagði Ferguson á heimasíðu félagsins. "Við munum fá frábæran stuðning á Ewood, andrúmsloftið verður skemmtilegt og við gætum ekki farið þengað á betri tíma. Ég á von á toppleik frá mínum mönnum og þeir verða að hafa trú á sjálfum sér og félögum sínum. Við eigum að hafa mannskap í að klára þetta og gengi liðsins hefur verið ágætt," sagði Ferguson. United hefur fengið þær frábæru fréttir að varnarjaxlinn Nemanja Vidic verði orðinn klár í slaginn á morgun, Nani er smátt og smátt að ná sér og svo á liðið von á því að endurheimta Darren Fletcher úr meiðslum í næstu viku - þegar hann er væntanlegur til æfinga á ný. "Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur. Það er gott að fá Vidic til baka í plús við þá Mikael Silvestre og Gary Neville, svo við höfum úr nokkrum mönnum að velja," sagði stjórinn. Þeir Anderson og Owen Hargreaves eru reyndar nokkuð tæpir fyrir leikinn á morgun vegna meiðsla og ljóst er að framherjinn Louis Saha verður ekki með.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira