Man Utd og Tottenham sættast á 25 milljónir fyrir Berbatov 13. ágúst 2008 09:31
Manchester United og Tottenham eru við það að ná samkomulagi um kaupverð á sóknarmanninum búlgarska Dimitar Berbatov. Enskir miðlar greina frá því í dag að kaupverðið verði 25 milljónir punda. Tottenham vildi upphaflega fá 32 milljónir fyrir leikmanninn en United var þá aðeins reiðubúið að greiða 20. Liðsmyndin af United fyrir tímabilið 2008/2009 verður tekin á föstudag og er gert ráð fyrir að Berbatov verði þá orðinn leikmaður United. Búist er við honum á Carrington æfingasvæðinu í dag eða á morgun til þess að undirgangast læknisskoðun. Gangi kaupin eftir lýkur 18 mánaða eltingarleik United við Berbatov en Tottenham hefur ítrekað hafnað tilboðum í leikmanninn. Þeir hafi hins vegar sætt sig við að Berbatov verði að fara eftir að hafa orðið vitni af lélegum frammistöðum hans í æfingaleikjum að undanförnu. Meðal annars í leik á móti Roma sem Tottenham vann 5-1. Berbatov var þá skipt út af í hálfleik eftir að hafa leikið 45 mínútur með hangandi haus. 25 milljónirnar sem Tottenham fá fyrir Berbatov verða strax notaðar í að finna eftirmann hans. Rússarnir Andrei Arshavin og Roman Pavluchenko eru líklegir kandídatar. Sá fyrrnefndi hefur hótað að fara í verkfall hjá Zenít Pétursborg fái hann ekki að fara en sá síðarnefndi hentar einkar vel sem fremsti maður í 4-5-1 leikkerfi sem Juande Ramos beitir að öllum líkindum í vetur.
Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira