Wenger harður á að kæra Inter 2. maí 2008 20:42 NordcPhotos/GettyImages
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, íhugar að kæra ítalska félagið Inter til FIFA vegna meintra umleitana þess til að fá til sín miðjumanninn Alex Hleb. Hvít-Rússinn hefur verið mikið orðaður við lið á meginlandinu í vetur þar sem Inter og Barcelona hafa verið sögð áhugasöm. Wenger hefur þó alltaf ítrekað að hann vilji halda í miðjumanninn sterka en hann hefur nú fengið sig fullsaddan af afskiptum félaga af þeim Hleb og Mathieu Flamini. Fréttir af ólöglegum fundi forráðamanna Inter með Hleb láku út í síðasta mánuði þegar Arsenal spilaði við AC Milan í Meistaradeildinni og Wenger segist vera búinn að afla sér betri upplýsinga um málið. Hann vill ekki gefa upp hvaða upplýsingar hafa komið fram í málinu, en vandar Inter ekki kveðjurnar. "Auðvitað mun ég láta FIFA vita af svona löguðu, sérstaklega vegna Inter og hegðunar útsendara félagsins. Nú veit ég meira hvað gerðist í Mílanó um daginn, en ég mun ekki gefa það upp nema við aðila sem tengjast málinu beint. Ég vil ekki segja meira um málið annað en það að það er ósanngjarnt að svona skuli eiga sér stað," sagði Wenger. Hann ítrekaði að Mathieu Flamini væri eini maðurinn hjá Arsenal sem væri í aðstöðu til að ræða við önnur félög, því samningur hans er að renna út. Það mun væntanlega ráðast á allra næstu dögum hvort Flamini framlengir við Arsenal eða fer frá félaginu. "Flamini má fara hvert sem hann vill, en hann má líka alveg vera hér áfram. Hleb á tvö ár eftir af samningi sínum og er ekki til sölu," sagði Wenger.
Enski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Sjá meira