Tónlist

Bjartasta vonin

Benny Crespo's Gang

Það er mikið að gerast á fyrstu plötu sveitarinnar sem kom út seinni hluta árs 2007. Því verður margur hissa sem sér þessa hljómsveit í fyrsta sinn; að hún skuli standa undir þessari metnaðarfullu, fjölbreyttu og orkumiklu tónlist sinni á sviði einungis fjögurra mann. Benny Crespo´s gang virðist iða í sköpunarskinninu.

Bloodgroup

Bloodgroup sendi frá sér sína fyrstu löngu plötu á sl. ári. Sticky situation nefnist hún og inniheldur svala danstónlist. Eitt laganna, Hips again, kemst hátt á lista yfir bestu lög ársins. Á hljómleikum er hljómsveitin spræk og skemmtileg og sýnir að binda má við hana miklar vonir.

Hjaltalín

Hljómsveitin hefur yfir sér bæði íslenskan og erlendan blæ, klassískan og dægurlegan, rokk- og popplegan, auk þess sem hún er fjölmenn...; Gæti verið vísir á ringulreið, en Hjaltalín, bæði með sinni ágætu plötu og skemmtilegri frammistöðu á hljómleikum, hefur gefið bjartar vonir um að hún eigi áhugaverða framtíð fyrir sér.

Seabear

Hljómsveitin Seabear sendi frá sér sínu fyrstu breiðskífu á árinu, The ghost that carried us away. Hún er einkar vönduð og vel heppnuð. Sindri Már Sigfússon fer fyrir sveitinni sem leikur melódískt og hlýlegt kántrískotið indírokk. Klukkuspil, fiðla og banjó auk hefðbundinnar hljóðfæraskipunar skapa sérstaka stemmningu og eftirminnilegan hljóm. Seabear er hljómsveit sem hefur þegar fundið sinn sérstaka tón og spennandi verður að fylgjast með í náinni framtíð.

Graduale Nobili

Stjórnandi: Jón Stefánsson. Kórinn er skipaður stúlkum á aldrinum 17 til 24 ára. Skipaður einvala liði ungra kvenna. Efnisskrá spennandi - túlkun frábær og fágun og agi mikill.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×