Sígild og samtímatónlist - Hljómplötur 6. mars 2008 17:48 Kammerkórinn Carmina er tilnefndur fyrir plötu sína, Melódía.
Jón Leifs: Edda I Gunnar Guðbjörnsson, Bjarni Thor Kristinsson, Schola Cantorum, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Hermann Bäumer. (BIS) Ómetanleg heimild um höfundarverk Jóns Leifs. Hér er um að ræða frumhljóðritun á fyrsta hluta Eddu-óratoríunnar, stærsta og metnaðarfyllsta verki þessa einstaka tónskálds. Verkið gerir miklar kröfur til flytjenda sem standa sig frábærlega. Er þar vert að minnast sérstaklega á framúrskarandi frammistöðu kórsins Schola Cantorum. Með plötunni fylgja ítarlegar upplýsingar um tónsmíðina og tónskáldið. Margra ára vinna liggur að baki þessari útgáfu sem er mikið þrekvirki. Melódía: Kammerkórinn CarminaStjórnandi: Árni Heimir Ingólfsson. (SMK). Sönghandritið Melódía er merk heimild um tónlistariðkun Íslendinga fyrr á öldum og á þessari plötu hljómar úrval laga sem fæst hafa verið hljóðrituð áður. Kammerkórinn Carmina hefur á undanförnum árum bætt fjöður í hatt íslensks tónlistarlífs en kórinn sérhæfir sig í flutningi endurreisnartónlistar og hefur vakið eftirtekt fyrir framúrskarandi flutning og spennandi efnisskrár. Túlkun söngvara og barrokkhljóðfæraleikara á þessum diski tekur mið af flutningsstíl fyrri alda og er innlifaður og fágaður. Nýjar útsetningar á gömlum lögum eru heillandi, tengja íslenska tónlistarsögu við tónlistarhefðir meginlandsins sem gefur plötunni spennandi vídd. Lagasamsetning er sannfærandi og heildstæð. Bæklingur hefur að geyma ítarlegur og gagnlegar upplýsingar um handritið. Hljómgæði eru fyrsta flokks og útlit plötunnar og innihald allt sýnir sterka heildarhugsun og listræna dýpt. Roto con moto: Njúton.Tónverk eftir Hlyn Aðils Vilmarsson, Önnu Sigríði Þorvaldsdóttur, Guðmund Stein Gunnarsson, Inga Garðar Erlendsson, Kolbein Einarsson, Steingrím Rohloff, Huga Guðmundsson. (SMK) Njúton hefur sýnt sig og sannað á undanförnum árum sem mikilvægt afl í íslensku tónlistarlífi. Hópurinn hefur sýnt listrænan metnað og áræði, verið dýrmætur vettvangur fyrir nýsköpun og tilraunamennsku. Á plötunni er að finna tónsmíðar sem allar eru samdar sérstaklega fyrir hópinn og er flutningur mjög góður, kraftmikill og blæbrigðaríkur. Hljóðupptaka og hljóðvinnsla plötunnar er afbragðs góð og slær þar við nýjan tón í plötuútgáfu innan "sígildrar" samtímatónlistar. Hönnun plötunnar sýnir einnig sterka heildarhugsun að baki útgáfunni og eykur á listræn áhrif.
Íslensku tónlistarverðlaunin Mest lesið Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Lífið Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi Lífið samstarf Fleiri fréttir „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Frumflutti nýtt lag á FM957: „Þetta er bara winning lag“ Cave vildi ekki taka þátt í „kjánalegri langloku“ Morrissey gegn „vók“ Tónlistarhátíðinni Lóu aflýst Eltir draumana og þarf að færa fórnir Brian Wilson látinn „Ég var ekki að búast við því að gráta svona“ Keyrði frá Sauðárkróki í Garðabæ fyrir einn gítartíma Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sjá meira