Everton hélt jöfnu gegn United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. október 2008 12:56 Ryan Giggs reynir hér að ná boltanum af Steven Pienaar. Nordic Photos / Getty Images
Everton náði 1-1 jafntefli gegn Manchester United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Darren Fletcher kom United yfir á 22. mínútu fyrri hálfleiks en Marouane Fellaini jafnaði metin á 63. mínútu. United var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og hefði getað skorað fleiri mörk en heimamenn létu til sín taka í þeim síðari og áttu skot í stöng skömmu eftir að þeir jöfnuðu metin. Rio Ferdinand var í byrjunarliði United á nýjan leik en hann missti af leiknum gegn Celtic í Meistaradeildinni í vikunni. Wayne Rooney var sömuleiðis í byrjunarliðinu og ætlaði sér að skora sitt 100. mark á sínum gamla heimavelli en honum var skipt á velli á 70. mínútu, fljótlega eftir að hann fékk að líta gula spjaldið. Louis Saha var í byrjunarliði Everton gegn sínu gamla félagi. Leikurinn fór nokkuð fjörlega af stað og bæði lið gerðu sig líkleg til að skora. Hins vegar óx United ásmegin eftir því sem á leið og komst yfir með marki Darren Fletcher um miðbik fyrri hálfleiksins. Hann fékk sendingu frá Ryan Giggs, lék á Joleon Lescott og sendi boltann í markið í gegnum fætur Tim Howard. Howard var þó vel vakandi í marki Everton það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og kom í veg fyrir að United færi með meira en eins marks forystu í hléið. Það var hins vegar allt annað að sjá til heimamanna í síðari hálfleik og þeir uppskáru mark eftir um 20 mínútna leik. Phil Neville átti sendingu frá hægri og Marouane Fellaini jafnaði metin með laglegu skallamarki. Örfáum mínútum síðar nýtti Yakubu sér mistök Rio Ferdinand og komst í fínt skotfæri. Edwin van der Sar varði hins vegar boltann í stöngina og United slapp með skrekkinn. Þetta reyndist besta færi leiksins til að skora sigurmark leiksins og niðurstaðan var því 1-1 jafntefli. United mistókst þar með að komast upp í þriðja sæti deildarinnar og er enn í því fimmta en nú með fimmtán stig, einu stigi á eftir Arsenal. Stigið var hins vegar afar kærkomið hjá Everton sem kom sér upp í þrettánda sætið úr því sextánda með níu stig.
Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira