Enski boltinn

Robinho klár á laugardaginn

NordicPhotos/GettyImages

Mark Hughes, stjóri Manchester City, hefur staðfest að Robinho muni að öllu óbreyttu spila sinn fyrsta leik með liðinu þegar það mætir Chelsea í kvöldleiknum í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Robinho spilaði allan leiktímann í nótt þegar Brasilíumenn máttu sætta sig við 0-0 jafntefli gegn Bólivíu og sagt er að forráðamenn City hafi splæst í einkaþotu til að sækja Suður-Ameríkumennina sína úr landsleikjunum fyrir átökin á laugardaginn.

"Eitt af því fyrsta sem Robinho sagði við mig þegar hann kom hingað fyrir tíu dögum var að hann gæti ekki beðið eftir að mæta Chelsea, svo það lofar góðu. Við munum kíkja á hann þegar hann lendir og ef hann er í góðu standi er líklega fátt sem bendir til annars en að hann komi við sögu á laugardaginn," sagði Mark Hughes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×