Fótbolti

Materazzi fékk skaðabætur og afsökunarbeiðni frá Daily Mail

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Marco Materazzi og Zinedine Zidane.
Marco Materazzi og Zinedine Zidane. Nordic Photos / AFP

Ítalski knattspyrnumaðurinn Marco Materazzi hefur samið við enska dagblaðið Daily Mail um skaðabætur og afsökunarbeiðni vegna umfjöllunar blaðsins um samskipti hans og Zinedine Zidane.

Zidane skallaði Materazzi í bringuna í úrslitaleik Frakka og Ítala á HM í Þýskalandi árið 2006. Daily Mail sagði að það hafi verið vegna þess að Materazzi sagði Zidane vera „son hryðjuverkahóru".

Lögmaður Daily Mail sagði að þessi ummæli væru alls ekki rétt og bað afsökunar á þessu fyrir hönd blaðsins. Ekki er gefið upp hversu miklar skaðabæturnar eru en þær munu vera dágóðar.

Báðir voru dæmdir í leikbann eftir atvikið en Zidane lagði skóna á hilluna eftir HM 2006.

Sjálfur hefur Zidane aldrei gefið upp hvað Materazzi sagði nema að hann hefði móðgað móður sína. Hann hefur heldur ekki beðið Materazzi afsökunar.

Materazzi sagði hins vegar á sínum tíma að ummælin hefðu snúist um systur Zidane.

„Ég var að toga í treyjuna hans. Hann sagði að ef ég væri svo spenntur fyrir treyjunni mætti ég fá hana eftir leik. Ég sagði þá að ég væri frekar til í að fá systur hans."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×