Enski boltinn

Stjóraleitin heldur áfram hjá West Ham

Roberto Donadoni er einn þeirra sem orðaðir hafa verið við West Ham
Roberto Donadoni er einn þeirra sem orðaðir hafa verið við West Ham NordicPhotos/GettyImages

Scott Duxbury, framkvæmdastjóri West Ham, segir að félagið sé búið að þrengja hringinn niður í fimm eða sex menn þegar kemur að leitinni í nýjum knattspyrnustjóra.

Duxbury vill ekki gefa upp hvaða menn um ræðir en breskir fjölmiðlar hafa helst nefnt þá Slaven Bilic, Roberto Donadoni, Roberto Mancini, Morten Olsen, Gianfranco Zola, Gerard Houllier og John Collins til sögunnar sem líklegustu eftirmenn Alan Curbishley.

"Við höfum þrengt hringinn og erum með fimm til sex menn í sigtinu. Við munum halda áfram viðræðum við þá um helgina," sagði Duxbury í samtali við Sky.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×