Sigurður Ragnar: Fyrsta skrefið að einhverju meira Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. október 2008 20:57 Sigurður Ragnar Eyjólfsson fagnar eftir leikinn. Mynd/Daníel
Sigurður Ragnar Eyjólfsson var vitanlega hæstánægður með sigur íslenska liðsins á því írska í kvöld en með honum tryggði Ísland sér þátttökurétt í úrslitakeppni EM sem fer fram í Finnlandi á næsta ári. „Ég er skælbrosandi í dag enda frábær árangur," sagði Sigurður Ragnar í samtali við Vísi eftir leik. „Þær stóðu sig alveg frábærlega og spiluðu ótrúlegan góðan fótbolta miðað við aðstæður. Þær stóðu sig alveg eins og hetjur." Sigurður Ragnar tók við landsliðsþjálfarastarfinu í ársbyrjun 2007 og setti sér strax það markmið að koma liðinu á EM. „Ég missti aldrei trúna á þetta og hef aldrei haft meiri trú á verkefninu en nú í dag. Liðið hefur spilað æ betur á þessum tíma og ég efaðist aldrei um að þetta tækist." „Að baki er mikil vinna, bæði hjá leikmönnum og þjálfarateyminu. Það er mikill heiður að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni og við höfum nú haft tvö ár til að koma okkar hugmyndum að og finnst mér að það hafi komið betur og betur í ljos í leik liðsins. Leikmenn hafa verið móttækilegir fyrir okkar hugmyndum enda afar metnaðurfullur hópur sem stefnir langt og hátt. Kannski að þetta hafi verið fyrsta skrefið að einhverju meira." Og hann segir að liðinu séu engin takmörk sett. „Við getum endalaust bætt okkur í fótbolta. Ég efast alls ekki um að við eigum erindi í þetta mót enda hefur okkur gengið ágætlega gegn þeim liðum sem við munum mæta á í Finnlandi. Nú tekur undirbúningurinn við og við ætlum okkur að gera góða hluti í Finnlandi."
Fótbolti Tengdar fréttir Ísland á EM Íslenska landsliðið tryggði sér í kvöld sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fer fram á Finnlandi eftir glæsilegan 3-0 sigur á Írlandi og samanlagt 4-1. 30. október 2008 17:33 Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira
Ísland á EM Íslenska landsliðið tryggði sér í kvöld sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fer fram á Finnlandi eftir glæsilegan 3-0 sigur á Írlandi og samanlagt 4-1. 30. október 2008 17:33