Enski boltinn

Reo-Coker: Hugsum ekki um andstæðinginn

Elvar Geir Magnússon skrifar

Nigel Reo-Coker segir að leikmenn Aston Villa ætli að leggja áherslu á að hugsa ekki um andstæðingana á tímabilinu heldur einbeita sér að eigin styrk.

Reo-Coker skoraði fyrra mark Villa í 2-1 sigrinum á Tottenham en með sigrinum komst Villa upp í fjórða sæti ensku deildarinnar.

„Þetta snýst bara um mikla vinnu og ákveðni. Það eru nýjar áherslur hjá liðinu og við hugsum ekki mikið út í mótherjana. Þetta snýst aðallega um okkur sjálfa og við vitum að þegar við spilum vel getum við unnið alla," sagði Reo-Coker.

„Við tökum bara einn leik fyrir í einu. Breiddin í hópnum er góð og allir þurfa að vinna fyrir sínu sæti. Maður þarf að sýna knattspyrnustjóranum að maður á skilið að spila. Andinn í hópnum er góður," sagði Reo-Coker.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×