28 ára bið Sunderland á enda Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. október 2008 13:37 Djibril Cisse fagnar marki sínu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Sunderland vann í dag sinn fyrsta sigur á Newcastle á heimavelli í 28 ár. Lokatölur voru 2-1, heimamönnum í vil. Djibril Cisse kom Sunderland yfir í fyrri hálfleik en Shola Ameobi jafnaði metin skömmu síðar. Kieran Richardson skoraði svo sigurmark Sunderland beint úr aukaspyrnu í síðari hálfleik. Joey Barton var á varamannabekk Newcastle eftir að hafa tekið út sex leikja bann og Jonas Gutierrez var einnig á bekknum en hann hefur verið að jafna sig á meiðslum. Hjá Sunderland var Kenwyne Jones á bekknum sem hefur einnig verið meiddur. Craig Gordon markvörður var hins vegar frá vegna meiðsla. Heimamenn voru ekki lengi að láta til sín taka. Steed Malbranque átti skot að marki en það er misheppnað. Djibril Cisse var hins vegar á réttum stað og náði að stýra skotinu í markið. Newcastle neitaði hins vegar að játa sig sigrað svo snemma í leiknum og náði Shola Ameobi að jafna metin fyrir gestina með skalla eftir aukaspyrnu Geremi. Ameobi komst svo aftur í gott færi í upphafi síðari hálfleiks eftir góðan undirbúning Nicy Butt. Annars var lítið um færi í leiknum þar til að Sunderland fékk aukaspyrnu þegar síðari hálfleikur var rúmlega hálfnaður. Kieran Richardson tók spyrnuna og skoraði glæsilegt mark með föstu skoti. Djibril Cisse átti síðan tvö góð skot að marki og það síðarnefnda hafnaði í stönginni. En þar við sat og Sunderland fagnaði dýrmætum sigri. Joey Barton kom inn á sem varamaður í leiknum eftir að hafa hitað upp síðan snemma í fyrri hálfleik. Á meðan hann hitaði upp fékk hann óblíðar mótttökur hjá stuðningsmönnum Sunderland sem köstuðu í hann smápeningum og einni flösku. Leikurinn var stöðvaður í skamman tíma en Barton virtist láta þetta lítil áhrif hafa á sig. Sunderland komst upp í áttunda sæti deildarinnar og er nú með tólf stig en Newcastle er enn í næstneðsta sæti með sex stig.
Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira