Íslenski boltinn

„Þýðir ekkert að tala við þessi fífl“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Garðar vísar hér Guðjóni af velli í hálfleik í gær.
Garðar vísar hér Guðjóni af velli í hálfleik í gær. Mynd/Valli

Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, fékk rautt spjald fyrir að vísa til dómara leiksins sem „fífl" í hálfleik leiks KR og ÍA í gær.

Þetta sagði Guðjón í viðtali við Rúv í þættinum Sportið sem var sýndur í gærkvöldi. Garðar Örn Hinriksson, dómari leiksins, staðfesti í samtali við Vísi að Guðjón hafi fengið að líta rauða spjaldið fyrir umrædd ummæli.

„Ég var að reyna að ná Stefáni í burtu," sagði Guðjón í gærkvöldi. „Stefán var að tala við Garðar og ég vildi ekki að hann væri að tala við dómarann. Ég kallaði á Stefán, Garðari líkaði ekki við það sem ég sagði og gaf mér rautt spjald."

Guðjón sagðist ekki hafa beint orðum sínum til Garðars, heldur Stefáns Þórðarsonar.

„Ég sagði ekkert við Garðar. Það sem ég sagði var: „Stefán, það þýðir ekkert að tala við þessi fífl, komdu þér í burtu."."




Tengdar fréttir

Garðar: Dómarar hata ekki ÍA

Garðar Örn Hinriksson lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir að hafa staðið í ströngu í leik KR og ÍA í gær.

Heimir og Pétur ósammála um meint brot

Heimir Einarsson, leikmaður ÍA, og KR-ingurinn Pétur Marteinsson eru ekki sammála um hvort sá síðarnefndi hafi brotið á Heimi skömmu áður en KR skorar síðara mark sitt í leiknum.

Guðjón: Ég vorkenni svona fólki

Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, fékk að líta rauða spjaldið í hálfleik í leik KR og ÍA í kvöld. Guðjón setur spurningamerki við margar ákvarðanir Garðars Arnar Hinrikssonar dómara í leiknum.

Láðist að setja upp borðann

Ingólfur Már Ingólfsson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar KR, segir að það hafi verið mistök að setja ekki upp borða í kringum varamannaskýli KR-vallarins í gær.

Skagamenn komnir með sex rauð spjöld í sumar

ÍA hefur fengið sex rauð spjöld á leikmenn sína í níu leikjum í Landsbankadeild karla í sumar og liðið er búið að spila manni færri í samtals 136 mínútur.

Stefán Logi: Algert óviljaverk

Stefán Logi Magnússon segir að Vjekoslav Svadumovic hafi ekki brotið á sér með ásetningi í leik KR og ÍA í gær.

Garðar stendur við rauðu spjöldin (myndband)

Garðar Örn Hinriksson sagði í samtali við Vísi að hann standi við alla sína dóma í leiknum í gær, þar á meðal bæði rauðu spjöldin sem hann gaf leikmönnum ÍA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×