Enski boltinn

Chelsea að landa Brassa

NordicPhotos/GettyImages

Sky fréttastofan greinir frá þvi að Chelsea sé við það að landa til sín brasilíska miðjumanninum Mineiro til að fylla skarð Michael Essien sem meiddist á dögunum.

Mineiro þessi er 33 ára gamall brasilískur landsliðsmaður og er varnarsinnaður miðjumaður.

Hann er með lausa samninga eftir að hafa verið m.a. hjá Hertha í Berlín og Sao Paulo í heimalandinu.

Sagt er að Luiz Scolari hafi miklar mætur á miðjumanninum, sem reyndar hefur einnig verið orðaður við Birmingham.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×